Rćktin
Inga
Nýyrđi
Mig langaði að nota tækifærið til að kynna fyrir ykkur nýyrðið Krippi. Frábært orð sem hentar öllum að nota gömlum sem ungum. Dæmi um notkunn orðsins: Margrét: "Inga er svo smávaxin." Erna: " Nei, hún er bara svo mikið krippi." Þetta orð er til sölu hérna á brunettes síðunni fyrir aðeins 99 kr. Leggið inn pöntun í athugasemdum eða hringið í síma 8688900 og orðið er ykkar.
Með fyrirframþökk Inga Krippi
Megrun 2
Come back ársins
Allavega tilraun til þess, ég þarfnast allrar hjálpar sem til er til að endurlíga þennann steindauða súra gamla mann er bloggið okkar er orðið af. Stelpur tökum höndum saman og rúllum þessu af stað eins og snjóbolta niður Esjuna. Ég ætla að sem sagt að byrja og deila þá með ykkur merkilegri reynslu sem ég lenti í um daginn.
Þannig stóð á hjá mér að ég var að rölta niður Hverfisgötuna í leit að myndarömmum. Ég álpaðist inní verslun sem ég man ekki eftir að hafa séð merkta einu sinni. Þar var enginn sjáanlegur starfsmaður en þó nokkuð úrval af lömpum og ýmsu öðru misnothæfu drasli. Ég gekk að afgreiðsluborðinu og sá þar bjöllu sem ég hringdi í von um að fá aðstoð. Ég beið þolinmóð við borðið og fitlaði við einhverja aldagamla hálsklúta á meðan. Alltíeinu varð ég vör við nærveru einhvers og andardrátt á hálsinum. Mér rann kalt vatn milli skinns og hörunds og sneri mér hægt við með hjartslátt í maganum. Það stóð þá ævaforn maður greinilega góður í að læðast. Ég óvart hvíslaði: rammar... hhmm (ræskti mig) áttu einhverja ramma? Maðurinn horfði djúpt inní augu á mér, góðlegur, lyktaði af kanil, og sagði lágt: Af römmum eigum við nóg, það eru þessir blessuðu birtingar sem klárast hins vegar alltaf. Ég bara já... datt ekki í hug að spurja við hvurn fjandan maðurinn átti en bað hann um að sýna mér hvar ég fyndi ramma. Hann jánkaði og leiddi mig með sér bak við þar sem allt benti nú bara til þess að hann byggi líka. Þar var lítið borð og þrír stólar og á borðinu var kaffi kanna, tveir bollar og kleinudiiskur. Hann sneri sér furðurlega hratt við og brosti þannig að sást í nokkur tannhræ. Hann spurði mig þá kurteislega hvort ég vildi ekki fá mér kaffisopa með sér fyrst. Ég algjörlega föst milli hamars og hests varð að þiggja það! Ég settist þá niður á slitinn blettóttan stól ekki alveg viss um hvað ég og karlgarmurinn ættum að tala um. Hann helti kaffinu (sem var reyndar gott) í bolla handa okkur og bætti smá viskíi útí sitt. Hann var allur hinn kátasti og spjallaði við mig eins og hann þekkti mig. Það var nokkuð gaman af honum og hann var lúmskt fyndinn. Skemmtilegust fannst mér gamansagan af fjósamanninum sem læknaðist af sullaveikinni, og á ég sko eftir að hafa hana eftir honum í einhverjum góðum gleðskap.
Eftir tvo kaffibolla og kleinu seldi hann mér þennan fína ramma og skellti einum hálsklút með í kaupbæti. Við kvöddumst og ég gekk út á blauta gangstéttina fyrir utan. Á leiðinni heim gat ég ekki annað en að brjóta heilann um hvaðan ég kannaðist við manninn... hann var merkilega kunnulegur þegar allt kom til alls... síðan loksins kveiknaði á perunni. Þetta var auðvitað hann pabbi minn.
Inga
Parísar blogg
Við skoðuðum svona þessa helstu túrista staði og ég verð að segja að Versalir og Louvre stóðu upp úr og reyndar Eiffel turnin þegar það var orðið dimmt og ljósin blikkuðu á honum... voða rómó. Við ætluðum reyndar að borða í Eiffel turninum en einhverra hluta vegna þá bókaðist ekkert borð á okkur þegar við pöntuðum þannig að við urðum að fara annað að borða. Fórum reyndar á ótrúlega góðan stað þarna ekkert svo langt frá og fengum okkur alveg dýrindis kræsingar, ég meira segja fékk mér snigla í forrétt og ég verð bara að segja að þeir voru bara alveg ótrúlega góðir, slímugir eeeeen bragðgóðir!
Við tókum svo eitt kvöldið í djamm, fórum fínt út að borða og fórum svo inn á einhvern þvílíkann snobbstað og vá hvað við eyddum miklum pening þarna og tónlistin var hræðileg... en það var bara gert gott úr því með góðum samræðum og jú við reyndar dönsuðum alveg helling en það vara bara einhver voða tecno tónlist í gangi en það er víst voða vinsælt í París. Ekki alveg mín tónlist.
Svo var bara drukkið mikið rauðvín, reyndar bara ég Josh var í bjórnum, og borðað mikið af góðum mat... Já svo kíktum við líka á RISA stórann markað, hann var geðveikur. Það voru brjálaðir antík munir út um allt, greinilega alveg frá sautjánhundruð og súrkál og endalaust mikið að silfur borðbúnaði og flottum húsgögnum og bara brjálað flott en ótrúlega dýrt líka, samt sennilega ekki miðað við hvað var í boði, maður er bara vanur eitthvað svo miklu drasli á svona mörkuðum en þarna hefði ég sko verið til í fara og versla.
En já, annars er lítið að frétta... mig langar að dunda mér við að læra á photoshop þannig ef einhver veit hvernig er best að nálgast það eða kaupa það þá endilega látið mig vita, þetta er nefnilega alveg fox dýrt
Þá kveð ég... gangið hægt um gleðinnar dyr börnin góð
Au revoir!
Magga
Ofur!
Ég er allavega í hoppandi stuði svona á fimmtudagsmorgni, alveg að koma föstudagskvöld og þá getum við sungið ,,loksins helgin komin eftir langa vinnuvikuna....osfv...
Gott djamm tekið síðustu helgi, skúlason í póker sangria kampavín og ananas á kindaknæpunni! fátt betra.
Núna á laugardaginn verðum við aftur með staffapartý (fáum ekki nóg af hvort öðru) átti fyrst að vera nokkuð saklaust grill en hefur undið uppá sig í humargrillveislu, hvítvín og kampavín, og ofurhetjuþema! Klárlega eitt besta þema sem ég hef nokkurn tíman heyrt. Ég ætla að vera ananas stelpan, það kom nottlega ekkert annað til greina ;) ætla að vera í gulu, grænu og gull lituðu, með skikkju! Er ekki alveg búin að uppgvöta ofurkraftana mína... en það kemur. Ég á eftir að taka fullt af myndum, þetta verður rosalegt.
Smá horn hérna af nýjum hlutum sem ég hef uppgvötað uppá nýtt og ætla að nota ofurhetjukrafta mína til að breyða út á meðal almennings:
1. Vangadans. Hver man ekki eftir að hafa verið í 8 bekk og vangað við einhverja æðislega ballöðu, þetta tíðskast varla lengur. Ég meina það er án djóks fátt betra að vanga við einhvern/ja sætan/sæta við eitthvað grípandi helst 80' vangalag. Mæli til dæmis með laginu Time of my life úr dirty dancing.
2. Valhopp. Fólk valhoppar alltof sjaldan, vanmetin hlutur. Það getur ekki annað en komið manni í gott skap að valhoppa niður laugarveginn á miðvikudegi. Og í staðin fyrir að fara út að skokka, fara út að valhoppa, góð hreyfing og bara gaman!
3. Skikkjur. Eiga eftir að koma sterkt inn, sé þetta fyrir mér sem dagsdaglegan klæðnað, ferð í buxurnar peysuna og síðan skikkjuna þína. Það mætti segja að þetta hafi nú tíðskast í the olden days, þegar við bjuggum í torfkofum, þá voru konurnar alltaf með sjal (skikkju) fóru ekkert án þess (hennar). Þær vissu sko hvað þær sungu.
4. Ég man ekki eftir meiru þannig að hérna ætla ég bara að mæla með myndinni Footloose, hún fær tvöfalt rokkstig í mínum bókum, hún bregst ekki. Kevin Bacon ER ofurhetjan mín.
Að lokum vil ég biðja um blogg frá ensku Möggunni, kannski um leið og hún er komin heim frá Paris, það væri alveg hreint glimrandi geðveikt.
Inga
Jungle Partý!
Þetta var án efa eitt besta partý sem við höfum haldið, heilu haugarnir af fólki, áfengið flæddi í stríðum straumum og tónlistin sló í gegn. Húsið var svo vel skreytt að það leit ekki lengur út fyrir að fólk byggi þar...
Ekki var nóg mikið um skandala.. en ég get talið upp nokkur atriði...
Löggan mætti klukkan 10 þegar aðeins 5 mans voru mættir vegna ofurölvuna í einum óvinsælum náunga sem kom sér í óvild hjá leigubílstjóra.
Trampólínið góða var pakkað saman í kúlu... hugsanlega af óvinsæla náunganum...
Halla var dugleg á myndavélinni og lét meðal annars taka mynd af sér á klósettinu... sick?
Höfðinginn var án efa sá vinsælasti og eftirsóttasti enda fór hann heim með einhverjum heppnum.
Frumskógurinn hafði töluverð áhrif á frummanninn í fólki og urðu því einhverjar smávegilegar ryskingar en ekkert alvarlegt og endaði það yfirleitt í faðmlögum.
Alveg óvart varð knæpan af VIP partýi, þar máttu aðeins útvaldir vera... en undir morguninn var öllum hleypt inn og þá var allt og ég meina allt áfengi klárað....
Mikið var dansað og veit ég allavega um eina danskeppni þar sem ungur maður skoraði á stúlku í dance-off, þau dönsuðu misvel eftir áfengisneyslu þannig það var ómögulegt að dæma sigurvegara.
Tvær fengilegar stúlkur, ljóshærð og dökkhærð, voru límdar saman á vörunum töluverðan hluta kvöldsins.
Hlaðið var eins og eftir þjóðhátið 2002 um morguninn.
Ein uppblásin mætti hress beint úr afmælispartýi og var slegist um hana þangað til hún leysti vind.
Partýið stóð til 11 um morguninn og þurfti að henda fólki heim því það ætlaði bara að setjast að á knæpuni.
Einn drengur yfirsást og svaf værum svefni inní stofu, vaknaði síðan í panik um morguninn því hann átti að vera löngu mættur í skírn.
Tiltektin gekk vel, farið var eina ferð á haugana og gólfið var orðið nokkurn vegnin hreint eftir 5 skúringaumferðir... En það er lítið gjald fyrir að fá að halda besta partý ever! Takk mamma =)
Ég set hérna link inná myndasíðu frá partýinu
http://www1.snapfish.co.uk/
notendanafnið er ingaast@hotmail.com og lykilorð er 1708844779
Takk fyrir geggjað partý allir sem mættu
Inga
Leidangurinn mikli
Jaeja ta er eg maett til london og aevintyrin eru tegar byrjud ad gerast! Tegar eg maetti var mer tilkynnt tad ad eg vaeri eiginlega fost a beisinu og ef eg fer ut ta kemst eg ekki inn aftur nema med josh
Hann er samt ad vinna i malunum og eg aetti ad fa passa naestu daga
Eg gat samt ekkert verid ad hanga heima og horfa a eitthvad af tessum tusund biomyndum sem hann er med tannig ad eg akvad ad leggja upp i leidangur. Eg hafdi nefnilega komid auga a stig sem hafdi vakid forvitni mina og skundadi af stad nidur hann. Eg byrjadi ad ganga og stigurinn vard alltaf meira og meira kripi og aevintyralegur! Hann leiddi inn i brjaladann skog tar sem var ekkert nema tre en samt fullt af hljodum eins og tad vaeri einhver tarna. Eg gekk alltaf hradar og hradar tar sem eg var nu ordinn soldid mikid smeik og loksins sa eg ad stigurinn var ad enda og eg kom nidur i bae. Nema bara eg kannadist ekkert vid tennan bae og tad var enginn a ferli eda neitt. Tetta var gedveikt skritid sko og hleypti sko imyndunaraflinu a fullt, en eg helt afram ad ganga og byrjadi ad sja folk og svona sem var nu lettir, gott ad vita ad eg var ekki ein i heiminum. Eg gekk lengra og lengra en var bara ekkert ad kannast vid mig og ta hitti eg stelpu sem hafdi verid keyrt a a motorhjoli og hun sagdi mer harmsogu sina og eg spurdi hana til vegar og ta turfti eg bara ad labba sma og ta var eg kominn i nidur i bae i High Wicombe (sem er baerinn sem eg by i).
Ta byrjadi tetta nu ad vera gaman og eg sa fullt af budum og gat audvitad ekki stadist tad ad versla soldid og var bara i tvi tangad til josh var buinn i vinnunni og kom og sotti mig.
Ta sagdi hann mer ad folk hefdi oft verid raent a tessum stig sem kemur mer svo sem ekkert a ovart ![]()
En tetta var allavega mega godur dagur og eg er ad hugsa um ad fara og gera mer aftur gladan dag og reyna ad lenda i aevintyrum ![]()
Tangad til naest!
Maggan
